Zone hársnyrtistofa var fyrst opnuð árið 1999 að Strandgötu 9 á Akureyri. En nýir eigendur tóku við í apríl 2015.
Á Zone starfa metnaðarfullar og hressar stelpur og er þar boðið uppá fyrsta flokks hársnyrtiþjónustu fyrir dömur, herra og börn.
Stofan er opin mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga frá klukkan 9 - 18, fimmtudaga frá 9 - 20, föstudaga 9 - 16 og laugardaga eftir bókunarstöðu. Opnunartímar geta einnig verið sveigjanlegir.
Hafið samband hérna, í síma 461-4700, eða á tölvupósti, verið velkomin.